Fullt forræði yfir auðlindum landsins
Aðild að Evrópusambandinu felur í sér framsal ákvörðunarvalds til Evrópusambandsins á þeim málefnasviðum sem heyra undir sambandið svo sem á sviði orku, sjávarútvegs og landbúnaðar. Þannig þyrfti íslenskur sjávarútvegur að undirgangast sameiginlega fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Yfirráð yfir íslenskum auðlindum er best borgið hjá íslenskum stjórnvöldum en ekki á skrifstofu í Brussel í 2.000 km fjarlægð.