
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Kjartan Magnússon, stjórnarmann í Ung gegn ESB ( xnei.is ) og varaformann ungliðahreyfingar Miðflokksins, í síðdegisútvarpinu í dag, um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræðræður við Evrópusambandið á ný og hvaða afleiðingar niðurstaða hennar gæti haft. Í viðtalinu hélt Kjartan því fram að samþykki kjósenda fyrir því að hefja viðræður fæli í reynd í sér pólitískt umboð til að hefja aðlögun Íslands að regluverki og stjórnskipan Evrópusambandsins, þótt endanleg ákvörðun um aðild kæmi síðar til kasta þjóðarinnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.