Lýðræðislegt ferli? – Grein eftir Ólaf Hannesson
Líkt og margoft hefur komið fram sótti Ríkistjórn Íslands um aðild að Evrópusambandinu, þetta var gert þegar mikill meirihluti þjóðarinnar var gegn aðild, þetta var einfaldlega eini möguleikinn sem Samfylkingin sá til að leysa vanda þjóðarinnar. Ég fór á kosningaskrifstofur allra flokkana fyrir kosningarnar í fyrra, þar á meðal til Samfylkingarinnar, ég spurði svona að gamni mínu hvort þeir hefðu aðrar lausnir ef ske kynni að ESB myndi ekki samþykkja okkur eða ef við myndum ekki samþykkja að ganga inn, þeim fannst þetta fyndin spurning og sögðu að það væru litlar líkur á því og ESB myndi nánast leysa öll okkar vandamál.
Þessa einföldu hugsun virðast Samfylkingarmenn hafa farið með í ríkisstjórn, það var ekkert sem komst að hjá þeim nema að sækja um aðild, og þjösnuðust þau á því og vældu eins og lítil börn sem vildu sælgæti í vinum sínum vinstri grænum. Samfylkingin gerði allt til að ferlið kæmist í gang, Jóhanna kallaði þingmenn VG inná teppið og hótaði því að ef þetta mál kæmist ekki í gegn um þingið, yrði hreinræktaða vinstristjórnin sjálfdauð og það yrði VG að kenna, Jóhanna hnippti einnig í ráðherra VG og lét kurteislega vita að ef greitt yrði gegn tillögunni um ESB aðild þá yrði ráðherradómurinn í hættu og líklegasta niðurstaðan, þú yrðir rekinn með skömm úr hennar ríkisstjórn.
Viti menn, þetta virkaði gagnvart mörgum þingmönnum, þetta mál slapp í gegn með naumlegum hætti, og við nú komin í „aðildarviðræður“ við ESB. Þetta vilja aðildasinnar kalla lýðræðislegt, að þjóðin hafi ráðið þessu. En hvernig fá þeir það út, meirihluti þjóðar gegn þessu og þingið lamið til hlýðni, kannski eðlilegt að aðildarsinnar fái það út, enda þeir sömu og halda því fram að við höfum tekið upp 80% af regluverki ESB, þvílík þvæla, það var lögð fram formleg fyrirspurn árið 2004 og samkvæmt því svari sem kom þá, alla leið frá ESB var prósentutalan um 6,5%. Allt í lagi, nú eru liðin 6 ár en öruggt má þykja að ekki hafi þessi tala hækkað upp í 80%, sjáið þið til, aðildasinnar notuðu þá tölu líka áður en hið formlega svar kom fram. En það hentaði þeim ekki og best var að halda sig við sömu lygina til að gabba fólk og telja því trú um að við værum hvort eð er með 80% af löggjöfinni, við gætum allt eð eins tekið upp hin 20 prósentin.
Nú hefur verið lögð fram ákveðin sáttartillaga frá þeim sem ekki vilja ganga í ESB, þeir vilja leyfa þjóðinni að ráða því hvort haldið verði áfram í aðlögunarferlinu sem nú er hafið, þetta er þjóðaratkvæðagreiðslan sem hefði átt að vera áður en Samfylkingin og nokkrir þingmenn ákváðu að þrýsta þessu ferli í andlitið á þjóðinni. Þetta ferli sem kostar hundruði milljóna og tíma sem gæti verið nýttur í að leysa þann vanda sem þjóðin stendur fyrir. Á sama tíma og fólk sveltur og mikill niðurskurður er í heilbrigðis og menntakerfi, þetta kallar maður sko forgangsröðun. Það er meira að segja talið að Ísland muni leggja meira fjárhagslega til ESB en við munum fá til baka, flott í kreppuni, meira bruðl. Það er kominn tími til að þjóðin fái að segja sitt um þessa aðlögun, þjóðaratkvæði verður að halda um málið og stöðva þetta ferli sem fyrst, notum svo tímann og fjármunina sem þá sparast til að lagfæra þann vanda sem við höfum hér til staðar, guð má vita að það gerir ESB ekki.
Ólafur Hannesson
stjórnarmeðlimur Ísafoldar
