Alþingismenn opinbera vanþekkingu sína – Grein eftir Karólínu Einarsdóttur

Ég velti því fyrir mér þegar ESB-sinnar og ónafngreindir Alþingismenn staðhæfa í fjölmiðlum og víðar að Ísland sé ekki í aðlögunarferli séu virkilega svona illa upplýstir eða hvort þeir séu hreinlega vísvitandi að fara með ósannindi. Satt best að segja veit ég ekki hvort sé verra, vanþekking eða óheilindi.
Það er í raun mjög auðvelt að kynna sér þetta ef maður nennir að gefa sér tíma til þess. T.d. á vef ESB: http://ec.europa.eu/enlargement/
Eftir að ESB samþykkti umsókn Íslands að sambandinu varð það orðið að einhverju sem kallað er candidate country. Þá tók við ákveðið tímabil rýnivinnu (sem er enn í gangi) og svo verða samningaviðræður hafnar í kjölfarið. Samhliða því fer fram ferli sem heitir Pre-accession (for-innganga) sem er ákveðin aðlögun (preperation) að ESB og undirbúningur sem miðar að því að breyta lögum og stjórnsýslu í átt að Acquis ESB (reglugerðarverkinu). Áður en Ísland getur gengið inn í ESB (accession) þarf það nefninlega að vera búið að taka upp allt reglugerðarverk ESB því ekki er hægt að fullgilda samninginn fyrr en svo er. Þetta á þó ekki við þær undanþágur sem sérstaklega er búið að semja um, þ.e. þau mál sem fá lengri aðlögunartíma, en samningsviðræðurnar snúast fyrst og fremst um að semja um sérstakan aðlögunartíma fyrir innlimun á ákveðnum erfiðum málum (t.d. sjávarútvegsstefnu ESB).
IPA (Instrument for Pre-accession assistant) er tæki sem er notað til að skipuleggja aðlögunina og veittir eru styrkir (frá Taiex) sem nýttir eru m.a. til að fjármagna að hluta til aðlögunina en umsóknarríkið þarf einnig að leggja fram sinn hluta í þann kostnað. Nú þegar er sú vinna farin í gang.
Það er því ekkert annað en vanþekking þegar fólk segir að Ísland sé ekki í aðlögunarferli (preperation) því það er hluti af for-inngöngunni (pre-accession). Þegar ákveðnir Alþingismenn saka þá sem reyna að upplýsa þjóðina þessu lútandi um að vera með ómaklegan áróður, hlýtur maður að vísa þeim orðum aftur til föðurhúsanna. Aðlögun Íslands að Evrópusambandinu er hafin, það er bara hreinn og beinn sannleikur.

Karólína Einarsdóttir
Stjórnarmeðlimur í Ísafold

Skildu eftir ummæli

12 ástæður fyrir því að hafna ESB aðild

1. ESB er eingöngu 6% af heiminum.

Lesa meira...

Hönnun og forritun vefsíðu Ragnar Aðalsteinn
Myndefni í borða María Kristín Steinsson